Ávarp

Ágæti stuðningsmaður

 

Að baki er lífleg kosningabarátta þar sem K-listinn hafði sigur og viljum við frambjóðendur koma á framfæri kærri þökk til þeirrar fylkingar er veitti okkur brautargengi.  Kosningarnar eru að baki og framundan er að vinna vel, það vita fulltrúar K-listans mætavel eftir að hafa stýrt sveitarfélaginu undangengin 8 ár.

 

Ágæti stuðningsmaður.  Með atkvæði þínu hefur þú lagt grunn að áframhaldandi stjórnarfestu í sveitarfélaginu.

 

Við munum kappkosta að vinna gott verk og breyta og bæta það sem þarf og vinna í anda lýðræðis.  Með fulltrúum minni hlutans og með íbúunum öllum.  Nú er kominn tími sátta í samfélaginu.  Lýðræðið hefur talað og saman viljum við róa að því öllum árum að gera Vopnafjörð sem bestan, gera gott samfélag betra.

 

Þá hefur verið ákveðið að stofna Bæjarmálafélag K-listans sem samanstendur af frambjóðendum og stuðningsmönnum sem þess óska.

 

 

Með þakkarkveðju,

f. h. K-listans,

 

            -Aðalbjörn Björnsson

Ágætu Vopnfirðingar

 

Úrslit kosninganna liggja nú fyrir.

Hart var að okkur vegið og ýmsar aðferðir notaðar bæði í ræðu og riti.  

 

Þegar ljóst var að um tvö framboð yrði að að ræða gerðum við okkur grein fyrir að erfitt reyndist að halda sama meirihluta þar sem atkvæði nýttust betur. Því stefndum við alltaf á að halda meirihlutanum sem var aðalatriðið.

 

Við erum sigurvegarar kosninganna!

Við fögnum sigri!

Við erum áfram við stjórnvölinn!

 

Til hamingju Vopnfirðingar!

 

Áfram verður stefnt á sömu braut og jafnframt unnið í þeim anda sem boðað er í stefnuskrá okkar.

 

Í anda lýðræðis.

Í anda framfara félagshyggju og uppbyggingar.

 

Gerum gott samfélag betra.

 

Aðalbjörn Björnsson

 

--------------------------------------------------------------------

 

 

 

 

26.5.2006

Hvatning oddvita

Góðir Vopnfirðingar!

 

Á undanförnum árum hefur okkur Vopnfirðingum tekist að byggja upp sveitarfélag sem fyllilega stenst samanburð við þau sveitarfélög landsins sem besta þjónustu veita.

 

VERKIN TALA

 

Áfram viljum við halda á sömu braut

 

Við horfum yfir byggðarlagið glöggum augum gestsins og mörkum stefnuna næstu fjögur árin með áframhaldandi uppbyggingu  og framþróun í huga.

 

Viljum gera gott samfélag betra

 

Á síðustu 8 árum höfum við haldið beinni stefnu framfara og þó að gefið hafi á bátinn hefur ekki verið slegið af heldur verið siglt áfram í átt að sterkara samfélagi?

 

Kjósandi góður,

við leggjum verk okkur í þinn dóm.

 

Þú veist hvað þú hefur

 

·        Vilt þú hafa vaðið fyrir neðan þig?

·        Vilt þú nokkuð  tefla  á  tvær hættur?

·        Vilt þú fólk sem kann vill og getur?

·        Vilt þú áfram trausta stjórn byggðarlagsins næstu fjögur árin?

 

Ef svarið er setur þú X við K á laugardaginn kemur.

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 3
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 30731
Samtals gestir: 8754
Tölur uppfærðar: 24.5.2012 19:54:51

Tenglar